Þessi síða hefur verið draumur minn síðan að ég var í ökukennaranámi. Ég er útskrifaður ökukennari síðan 2021. Að síðunni stendur Guðlaugur Magnús ökukennari.
Einnig hér á síðunni er spjallmenni/chatbot Ökuaðstoð, sem er í stöðugri þróun, en hugsunin á bakvið það er að nemendur og aðrir sem vilja geta flett upp spurningum án þess að þurfa að lesa langar og þurrar greinar til að komast að niðurstöðu með eina litla spurningu. Endilega látið mig vita ef þið finnið ekki spurninguna ykkar, svo ég geti bætt henni við.