Skilmálar

Þegar farið er inná vefsvæði keyrum.is, samþykkir þú að fara eftir þessum skilmálum.

1. Eigandi síðunnar

Vefsvæðið http://www.keyrum.is (sem verður talað um héðan í frá „vefsíðan“) er eign Guðlaugs Magnúsar Ingason, og fer hann með stjórnun vefsíðunnar.

2. Lög og reglur

Íslensk lög gilda um aðgang og notkun á síðunni. Mál vegna brota á skilmálum þessum skal reka fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.

3. Gildissvið

3.1 Með því að fara inn á vefsíðuna og allar hennar undirsíður, skoða þær og/eða afla upplýsinga af þeim, samþykkir notandi án takmarkana að vera bundinn af þessum skilmálum.

3.2 Skilmálarnir gilda yfir alla notkun, gögn og efni sem finna má vefsíðunni. Vefsíða í skilningi þessara skilmála skal teljast vera upplýsingar sem dreift er á heimsvísu með Hyper Text Transfer Protocol (HTTP staðli) um Transmission Control Protocol/Internet Protocol (TCP/IP) netið, sem jafnframt er nefnt Internetið.

3.3 Gögn sem birt eru á vefsíðunni eru til frjálsra afnota nema annað sé tekið fram, enda sé uppruna gagna getið ef þau eru birt eða notuð af öðrum til útgáfu eða framsetningar. Þetta á einnig við um ljósmyndir og aðra myndræna framsetningu ofangreindra gagna. Afnotaréttur gagna er ekki takmarkaður, hvorki til einkanota né í viðskiptalegum tilgangi, nema þess sé sérstaklega getið. Námsefni ökuskóla 1 og 2 er með öllu bannað að nota annarsstaðar eða dreifa til annars aðila.

3.4 Skilmálar þessir gilda frá 01.01.2025.

4. Áreiðanleiki upplýsinga og gagna. Ábyrgð.

Eigandi síðunnar reynir eftir fremsta megni að tryggja að  upplýsingar á síðunni og gögn sem birtast á vefsíðunni séu réttar. Eigandi síðunnar er ekki ábyrgur fyrir skaða sem getur hlotist af völdum skorts á upplýsingum eða rangra upplýsinga á vefsíðu þessari. Það er alltaf á ábyrgð notanda að meta nákvæmni, heildstæðni og/eða notagildi þess efnis sem er á vefsíðunni.

5. Tengdar vefsíður

5.1 Eigandi síðunnar ber ekki ábyrgð á efni á öðrum vefsíðum sem eru tengdar við þessa vefsíðu. Fari notandi inn á aðra vefsíðu sem tengd er við þessa vefsíðu er það alfarið á hans eigin ábyrgð.

6. Breytingar á vef og tímabundin takmörkun/rof á aðgangi

6.1 Eigandi síðunnar áskilur sér rétt til að endurskoða og breyta efni, þjónustu, aðgerðum og/eða upplýsingum á vefsíðunni án fyrirvara og tilkynningar. Þær breytingar eru skuldbindandi fyrir notendur enda hafa þeir með því að fara inn á vefsíðuna fallist á að hlíta skilmálum þessum.

6.2 Eigandi síðunnar hefur rétt til þess að takmarka og/eða rjúfa aðgang notanda að vefsíðunni fyrirvaralaust og án tilkynningar, vegna nauðsynlegra viðgerða, bilana í hug- eða vélbúnaði, uppfærslu skráa, breytinga á kerfum og annarra óviðráðanlegra orsaka og nauðsynlegra aðgerða allt eftir mati eiganda síðunnar hverju sinni.

7. Brot á notendareglum og skilmálum

7.1 Notandi er ábyrgur fyrir ummælum sem hann skrifar í umsagna og athugasemdakerfið á vefsíðunni. Brjóti notandi gegn skilmálum þessum áskilur  eigandi síðunnar sér rétt til þess að grípa til þeirra úrræða að eyða út athugasemdum og/eða loka fyrir aðgang tiltekins netfangs og þar með notanda að vefsíðunni.

8. Söfun og vinnsla persónuupplýsinga

8.1 Notandi samþykkir að eigandi síðunnar hafi eftirlit með og skrái notkun notanda á vefsíðunni.

8.2 Með notkun sinni á vefsíðunni þá samþykkir notandi jafnframt vinnslu slíkra persónuupplýsinga.

9. Annað

9.1 Keyrum.is er ritstýrður miðill, það þýðir þó ekki að efni sem á hann er sett sé ritskoðað.

9.2 Guðlaugur Magnús áskilur sér rétt til að endurskoða og breyta skilmálum þessum án fyrirvara og tilkynninga.