Kerruprófið/BE réttindi
Langar þig í BE réttindi, hafðu þá samband við okkur, gudlaugur@keyrum.is – 8670251
Að taka kerruréttindi eru 4 verklegir ökutímar, þar sem þú lærir að bakka með kerru og keyra með hana útí umferðinni.
Verð fyrir námskeiðið er 75.000 kr og svo greiðist prófagjald til Frumherja, 20.500 kr
Æfingar sem eru æfðar fyrir prófið, einnig er munnlegt próf fyrir prófið.
Fróðleikur um BE réttindi/kerruprófið.
BE réttindin veita heimild til að keyra bíl sem er allt að 3500 kg að heildarþyngd og draga kerru/eftirvagn sem er skráður að hámarki 3500 kg að heildarþyngd. Leyfð heildarþyngd bíls og kerru má vera 7000 kg.
Passa verður að bíllinn sé skráður til að draga svo þunga kerru, kynna verður sér vel skráningaskírteini bílsins, þar sem má finna upplýsingar um hversu mikið bíllinn má draga.
Ökumenn sem tóku almenn ökuréttindi fyrir 15. ágúst 1997 fengu sjálfkrafa bæði B og BE réttindi. Þeir sem tóku prófið eftir 15. ágúst 1997 fengu eingöngu B réttindi.
Þeir sem eingöngu hafa B réttindi geta öðlast BE réttindi með því að sækja um BE réttindi hjá sýslumanni, taka fjóra verklega tíma hjá ökukennara og taka verklegt próf í kjölfarið. Til að mega sækja um BE réttindi þarf að vera orðinn 18 ára og hafa fullnaðarskírteini.
Eftirvagn sem dreginn er af bíl, hvort sem það er tjaldvagn, fellihýsi, kerra eða hjólhýsi, breytir aksturseiginleikum bílsins. Hann verður þyngri, óstöðugri og vill rása til á veginum.
Ökumaður sem er á bíl með ABS hemlum og með eftirvagn sem ekki hefur þá hemla þarf að gæta þess að ef er nauðhemlað, þá er hætta á því að vagninn fari ekki sömu leið og bíllinn og getur eftirvagninn jafnvel lagst fram með bílnum.
Ef eftirvagn er breiðari en ökutækið og hindrar baksýni þarf að framlengja hliðarspegla bílsins báðum megin þannig að ökumaður sjái beggja vegna, aftur með ökutæki og eftirvagni.
Eftirvagnar með heildarþyngd yfir 750 kíló eiga að vera búnir hemlum.
Tengibúnaður á að vera traustur, af viðurkenndri gerð og skráður í skráningarskírteini. Öryggiskeðju eða öryggisvír skal alltaf nota.
Allir eftirvagnar eiga að vera með ljós sem eru hliðstæð aftur- og hliðarljósum bílsins.
Athugið vel stöðuljós, hemlaljós, stefnuljós, þokuljós, númeraljós og glitaugu áður en lagt er af stað.
Hámarkshraði fyrir ökutæki með eftirvagna, er ekki lægri, eins og áður var. Ökumenn skulu aldrei aka yfir uppgefinn hámarkshraða. Uppgefinn hámarkshraði er alltaf miðaður við bestu mögulegu aðstæður.
Ökuhraði skiptir miklu máli þegar umferðaröryggi er annars vegar. Eftir því sem hraðinn eykst þeim mun lengri verður hemlunarvegalengdin, þar með aukast líkur á að ökumaður nái ekki að stöðva í tæka tíð ef eitthvað óvænt kemur upp á – ekki síst þegar ekið er með eftirvagn.
Að því sögðu þarf þó að hafa í huga að eftirvagn sem dreginn er af bíl, hvort sem það er tjaldvagn, fellihýsi, kerra eða hjólhýsi, breytir aksturseiginleikum bílsins. Hann verður þyngri, óstöðugri og vill rása til á veginum.
Vindur getur tekið í og við verstu aðstæður getur eftirvagninn fokið út af veginum ásamt bílnum. Fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og aðra tengivagna ber að fara sérstaklega varlega ef að stöðugur vindur er 15-19 m/sek en 15-25 m/sek. í vindhviðum