Upphaf ökunámsins.

Hér er nokkrar hagnýtar upplýsingar um ökunámsferlið, hvað þarf að gera!

Hægt er að byrja að undirbúa sig fyrir að taka bílpróf við 16 ára aldur.
Ökunámið, í grófum dráttum, skiptist í

  • bóklegt nám í samtals um 25 kennslustundir (Ökuskóli 1, 2 og 3)

  • ökutíma með ökukennara í 17-25 kennslustundir

Allt hefst þetta á því að sækja um námsheimild og finna sér ökukennara.  Námsheimildina má finna á island.is/namsheimild, þegar er búið að fylla hana út, þarf að fara með nýlega passamynd á næstu sýslumannsskrifstofu. Ökukennara má finna á þessari síðu, Ökukennarafélag Íslands.

Þegar þessu ferli er lokið, geturðu hafið akstur með ökukennara og er skylda að taka að lágmarki 10 verklega tíma hjá ökukennara, sem eru 45 mínútur að lengd hver, ökukennarinn ákveður síðan hvort þörf er á fleri tímum, einnig heldur ökukennarinn um rafræna ökunámsbók og færir inn tímana þar.

Eftir akstur með ökukennara má hefja æfingaakstur með leiðbeinanda, sá aðili þarf að sækja um leyfi á island.is/æfingaakstur, æfingaleyfið gildir í 18 mánuði, eftir æfingaaksturinn tekur ökukennarinn aftur við og undirbýr viðkomandi nemanda undir verklega prófið.

Ökuskólar sem þarf að taka á meðan náminu stendur eru þrír.

  • Ökuskóli 1, hann er tekinn samhliða fyrstu 10 verklegu ökutímunum með ökukennara.

  • Ökuskóli 2, hann er tekinn þegar líður að bóklega prófinu.

  • Ökuskóli 3, hann má taka þegar þú hefur klárað ökuskóla 1 og búinn með 10 verklega tíma hjá ökukennara, ökuskóli 3 er staðsettur á tveim stöðum, Akureyri og Hafnarfirði.

Bóklegt próf má taka 2 mánuðum fyrir 17 ára afmæli, Frumherji annast prófin, smelltu á hlekkin frumherji.is/ökuprófasvið hann mun flytja þig á vef Frumherja, nemandi sér sjálfur um að bóka þetta próf.

  • Prófið er tekið á spjaldtölvur, 50 spurningar og þarf að svara 45 rétt, þetta eru rétt og rangt spurningar. Niðurstaðan kemur strax úr prófinu, spurt er úr efni ökuskólanna og það sem þú hefur lært hjá ökukennaranum.

  • Upplestur er í boðði fyrir öll próf.

  • Ef viðkomandi talar ekkert af þeim tungumálum sem þýdd eru getur sá komið með túlk í prófið. Mikilvægt er að túlkur sé löggildur eða með samþykki frá Samgöngustofu.

Ökutímar sem þarf að taka fyrir verklega prófið og eru að lágmarki 7 tímar, þannig að gera má ráð fyrir að heildar ökutímar séu að lágmarki 17 verklegir tímar með ökukennara, ökukennarinn getur haft þá fleiri, telji hann ekki nemandann tilbúinn.

Verklegt próf má taka 2 vikum fyrir 17 ára afmæli, það skiptist í munnlegt próf og akstur um fyrirfram ákveðnar akstursleiðir, prófið sjálft er tekið á bíl ökukennarans. Ökukennarinn sér um að bóka verklegt próf fyrir nemandann.

Þegar bóklega og verklega prófið er staðið, þá er gefið út bráðabirgðarskírteini, það gildir 1-3 ár, heimilt er að fara í akstursmat hjá ökukennara að ári liðnu, sé ökumaðurinn punktalaus vegna umferðarlagabrota, eftir það fær hann fullnaðarskírteini.